Leið til kveikju er ein af þremur útfærslum Skapandi hópverkefnis 2016. Markmiðið með spilinu er að hvetja kennara og kennaranema til samvinnu og að samþætta námsgreinar. Í gegnum kennaranámið hefur verið lögð mikil áhersla á mikilvægi þess að kennarar sýni samstöðu og vinni saman að því að koma til móts við þann fjölbreytta nemendahóp sem er í grunnskóla. Hugmyndin að spilinu varð til út frá spurningunni um það hvernig hvetja mætti kennara til þess að vinna saman að því að samþætta margskonar námsgreinar. |