Spilið
Hugmyndin að spilinu Leið til kveikju kviknaði á fundi heildarhóps Skapandi hópverkefnis þar sem verið var að ræða mikilvægi þess að kennarar vinni saman og þess að fá stuðning og hvatningu frá umhverfinu til samvinnu. Hópurinn taldi að það þyrfti að opna hug kennara og breikka sýn þeirra á þær greinar sem hægt er að tengja saman. Mikilvægt væri að kennarar þyrðu að tengja saman allar þær greinar sem kenndar væru og fyndu efni sem hægt væri að vinna með.
Leið til kveikju er spil sem ætlað er faglærðum kennurum sem og öðru faglærðu starfsfólki skóla til aðstoðar við að fá hugmyndir að samvinnu kennara og samþættingu námsgreina. Með spilinu viljum við hvetja til samvinnu á milli kennara, sem felst í því að samþætta námsgreinar í þeim tilgangi að námið verði merkingarbærara fyrir nemendur. Kennarar og kennaranemar geta notað spilið til að fá hugmyndir að óhefðbundnum nálgunum í kennslunni. Leið til kveikju er ekki hugsuð sem lausn á verkefnaskorti, heldur kveikja fyrir þá kennara sem velja að nota spilið til verkefnagerðar. Með spilinu fylgir handbók þar sem sjá má nokkrar útfærðar hugmyndir sem sýna hvernig hægt er að nota spilið. Handbókina má einnig finna hér til hægri. Samhliða spilinu var einnig skrifuð ítarleg greinargerð. Í henni má meðal annars lesa um fræðilegan bakgrunn spilsins og tengingu þess við Aðalnámskrá grunnskóla. Greinagerðina má finna á vefsvæðinu skemman.is sem og hér til hægri (ath. kemur inn síðar). |
|