Við erum fimm kennaranemar á 3. ári í Háskóla Íslands sem komum að verkefninu Leið til kveikju. Við stefnum allar á frekara nám í Grunnskólakennarafræði á meistarastigi.
Agnes Skúladóttir er fædd 24.janúar 1985 og kemur frá Skagafirði. Kjörsvið: Upplýsingatækni, leiklist, tónlist og dans og íslenska. Er einnig hársnyrtimeistari og rak Móðins hárstofu í 4 ár.
Arianna Ferro er fædd 10. nóvember 1992 og er hálf ítölsk og íslensk. Hefur búið í Hafnarfirði mestan tíma ævi sinnar. Kjörsvið: Tónlist, leiklist og dans og myndmennt. Er einnig í hljómsveitinni Sæbrá, vinnur hjá WOWAIR og móđir yndislegrar 3 ára stúlku.
Ásdís Elva Jónsdóttir er fædd 15. mars 1987 og kemur úr Kópavogi. Kjörsvið: Kennsla yngri barna og íslenska. Er einnig hársnyrtimeistari og vinnur við það samhliða náminu.
Eva María Örnólfsdóttir er fædd 6. febrúar 1989 og kemur frá Siglufirði. Kjörsvið: Kennsla yngri barna og matur, menning, heilsa. Er einnig með burtfararpróf úr Fatatækni.
Ólöf Katrín Þórarinsdóttir er fædd 13. júní 1987 og kemur frá Reykjavík. Kjörsvið: Leiklist, tónlist og dans. og upplýsingatækni. Rekur samhliða náminu gistiheimili og æfir söng við Tónlistarskóla FÍH.